..SUNNUDAGUR OG SÆLA....

 

Sunnudagur og Hemminn í banastuði á Bylgjunni...Púlararnir mínir búnir að rúlla Everton upp...pönnukökurnar farnar að meltast þarna einhvers staðar innan í mér og vellíðanin streymandi um æðakerfið...snillingur, þessi sem fann upp hvíldardagana....

   The Hemmi... 

Annars erum við Trönuhjallatöffararnir bara í góðum gír....

Minnstan á leiðinni að norðan...búin að skíða þar og skemmta sér...fara út að borða og í bíó og éta snakk fyrir peninginn...og ég bara að bíða eftir þvotti frá henni því daman er á leið á Reyki í fyrramálið.... 

Magginn og ég kíktum í heimsókn til fyrrum eigenda Tönju hundastelpu...til að leyfa henni að hitta foreldra sína og fá nokkrar skemmtilegar sögur eigendanna í bland...og var það mjög skemmtileg og lærdómsrík heimsókn svona fyrir utan það að mamman er kannski ekkert sérlega gestrisin...he he... 

Hjónin tóku okkur opnum örmum og fannst svooo gaman að sjá litla hvolpinn orðinn að hefðardömu...en foreldrarnir sáu hana á tvennan hátt...annars vegar sem ógn og hins vegar sem spennandi kost.... 

Mamman sem sagt RÉÐIST á litlu ljónynjuna.....og þaggaði niður í henni með því að BÍTA hana í hausinn..rétt við augað...en pabbinn reyndi að gera margar tilraunir til að komast upp á sína eigin dóttur...sifjaspell skiluru...þykir samt ekki alvarlegt í heimi dýranna...er ¨natural¨ 

 smal_tanja.jpg Tanja flottasta skvísa landsins.... 

Litla ljónynjan varð gjörsamlega að engu þarna...fór alveg í flækju og reyndi að fela sig á bak við okkur og gera sem minnst úr sér...Pabbinn var voða sætur og flottur...en honum fannst þessi skvísa bara einum of freistandi...enda mundi hann ekkert eftir henni....

Mamman var náttla nýbúin að eignast ógó flotta hvolpa...þrjár litlar systur handa Tönjunni...og var líklega bara skíthrædd um að Tanja myndi stela þeim af sér... Það var svo fyndið að upplifa þetta móment...þegar sú sem ALLTAF ræður...varð að lúffa fyrir annanrri frekari og öðrum ágengari....he he...

Hollt og gott fyrir þessa litlu ofurskvísu...kennir henni að vera ekki með kjaft við sér eldri og reyndari hunda....

Litla ljónið sem er ekki hrædd við Sjeffer og Doberman...og stjórnar öðrum hundum í fjölskyldunni algerlega.... 

Tanja er enn að jafna sig eftir lætin...öskrin..veinið og spangólið...og er komin með ljóta sýkingu í augað eftir bitið....

Wow hvað hún lærði mikið á einu kvöldi... 

Okkur fannst hins vegar mjög gaman að koma og sjá þessa flottu foreldra hundastelpunnar okkar....sjá hvaðan hún hefur útlitið og heyra um skapgerðareinkenni...venjur og siði....bara gaman....

Ætlum að reyna aftur síðar...þegar hvolpakrílin verða komin til góðra eigenda...ohhhh...þeir eru svoooo sææææætir!!!! Algjörar dúllur!!!!  

hvolpur1 Bara dúddí....... 

Elnan og ég ætluðum að föndra feitt allan laugardaginn en það urðu ýmsar breytingar á því plani og margar góðar sko...því við fengum nýjan og flotttan sófa...Elstimann fékk rúm og náttborð....og svo fengum við líka sófaborð og stól...svo nú erum við að breyta...leita...skreyta....og gera sætt hjá okkur...eins og er alltaf....en ef einhvern vantar tvo ágæta sófa...þriggja og tveggja sæta...þá má koma og hirða þá....mjög fínir og penir...með púðum og alles...kosta ekkert...bara sækja....

  

Fórum svo með ALLAR flöskur og dósir...svo kannski fer ég að komast í frystikistuna aftur...thí hí...litla sæta geymslukrílið mitt er svo stútfullt að það hálfa væri nóg...en ég get ENGU hent...alveg satt.... 

Skemmtileg vika framundan...með litlu leikskólakrúttunum mínum sætu...það er svoooo gaman að mæta á mánudögum og fá allt knúsið og finna hvað ég saknaði þessara litlu gullmola....því það eru þau öll.... 

Stundum líður mér svona eins og ég hafi LÁNAÐ þau til foreldranna...og kannski er það eigingirni...eða að ástæðan sé sú að ég er með þeim átta til níu tíma á dag og þetta verða ósjálfrátt svo miklir hlutar af manni...wow...ef maður hugsar til baka...til allra sem maður hefur verið að annast...hugsa um....kenna og leika við í gegnum tíðina....í allt 22 ár....ég er ekkert smá rík af öllu sem mér hefur verið gefið...öll þessi bros...knús...tár...orð....úff...maður verður bara næstum klökkur.... Samt er ekki séns að reyna að muna hvert andlit...hvert nafn....

Jæja....komin út á hálan ís....vona að vikan verði bara fín hjá öllum...slysalaus...full af flottum verkefnum og fínum úrlausnum...skemmtilegum hugmyndum og ánægjulegum samverustundum með góðu fólki...Njótið!!!!

TVEIR NETTIR Í RESTINA....

Eiginmaðurinn kleip konuna sína létt í aðra rasskinnina og sagði:,,Ef þú næðir þessum aðeins stinnari þá gætirðu hætt að ganga í “shockup” sokkabuxum…”Síðan kleip hann í annað brjóstið á henni og sagði:,,Og ef þetta væri aðeins stinnara þá gætirðu látið brjóstarhaldarann fjúka…”Konan var nú orðin fokvond. Hún kleip manninn í typpið og sagði:,,Ef þú næðir þessum upp þá gætum við losað okkur við garðyrkjumanninn, póstberann, piparann og bróður þinn…”

He he he..

. 

Maður og kona sem höfðu aldrei hist áður, en voru bæði gift öðrum
aðilum, höfðu verið bókuð í sama lestarklefann á ferðalagi. Eftir
frekar vandræðalega stund og óþægilegar mínútur yfir því að þurfa að
deila klefa, voru þau bæði orðin mjög þreytt og sofnuðu
fljótlega.
 Hann í efri koju og hún í neðri kojunni. Um kl 1.00 um
nóttina hallaði maðurinn sér yfir kojuna og vakti konuna blíðlega.
Pst...pst.... sagði hann. Fyrirgefðu  frú að ég sé að trufla þig en viltu
vera svo væn að opna skápinn fyrir mig og rétta mér annað teppi, mér
er svo kalt. Ég hef betri hugmynd, sagði hún. Hvernig líst þér á að
við látum eins og við séum gift - Bara í nótt ? VÁÁ - það er frábær
hugmynd svaraði hann.  Gott sagði hún: "Farðu þá og náðu í þitt andsk...
teppi sjálfur"

Eftir augnabliksþögn - þá rak hann við 

 

Thí hí....

Lovjú!

 


..EINS GOTT AÐ ÞEIR ERU BARA EINU SINNI Á ÁRI.....

 

Þá er nú laaaangþráðu páskafríi lokið og allir orðnir nokkrum grömmunum þyngri eftir sælkeramat og eggjaát dauðans....

Nutum þess í botn að vera heima og kúsa okkur...fara í laaangan bíltúr austur fyrir fjall...kíkja á og knúsa tvíburakrúttin okkar í klessu...skoða litla sæta voffakrúttið þeirra og dást að.....kíkja í heilsubælið í Borgarheiðinni og bruna svo Þingvallahringinn heim...ómg...hvað það var allt FALLEGT þennan langa föstudag....sól og snjór og heiðskír himinn og allt að gera sig...enda voru teknar myndir fyrir allan peninginn....

Þingvellir voru algert konfekt í ljósaskiptunum og tunglið...maður minn...við gátum ekki keyrt því við URÐUM að horfa og horfa og horfa....

Magginn reyndi að fanga þessi augnablik á myndavélina sína góðu...og tókst bara nokkuð vel....

Ég FANN EKKI páskaskrautið mitt þetta árið...og ég REYNDI ekki einu sinni að leita...minnug þess þegar geymslan hrundi yfir mig...nennti sko ekki svoleiðis bulli og bauð henni bara gleðilega páska og tek til þar seinna....

Ég fór bara í Blómaval og keypti páskagrein og páskaliljur...fann hluta af fermingarskrautinu og lét það gott heita...hmmmm...geri bara meira næst...

Á páskadagsmorgun vöknuðum við hjónakornin um hálftólf og vorum hálf sjokkeruð yfir grísunum þremur...sem venjulega eru búnir að finna páskaeggin á þessum tíma dags...en í ár URÐUM VIÐ AÐ VEKJA ÞAU...sæll...er eitthvað að breytast hérna eða....????

Jæja..liðið spratt á lappir...NOT...en var samt voða spennt fyrir eggjaleitinni miklu....og skelltu sér í verkið af fullum krafti....

Þau voru búin að mælast til að ég þyngdi verkefnið MIKIÐ og mér tíkst það bara...he he...

Gerði líka leit fyrir Reykásinn og Borgarheiðina....fer kannski bara að framleiða þetta...já sæll....Thí hí...

Þar sem ég er soldið mikið kvikindi svona inn við beinið og víðar...þá lét ég þau fara upp og niður og út og suður og passaði að hafa ENGA pósta nálægt hver öðrum.....og þau skottuðust því hægri vinstri...hin þolinmóðustu...og ég og Magginn sátum og skemmtum okkur ótrúlega vel yfir öllum pælingunum og orðskrípunum sem ultu upp úr þessum flottu grislingum okkar....

76. mínútum eftir að fyrsta vísbending var afhent fundust eggin loks uppi í skáp hjá Minnstunni....og þá brosti gengið allan hringinn....

Það þarf náttla ekki að spyrja að því...en eggin brögðuðust að sjálfsögðu BEST.....

Ég henti hinum dásamlega kalkúni svo í ofninn og við brunuðum í páskakaffi í Funalindina til Mömmsunnar og pabbalingsins og þar var étið og étið og étið....og allir fengu súkkulaðiegg og málshætti...bara flott....

Vantaði hluta af liðinu...það var nebbla ekkert páskafrí hjá þeim í Ensku deildinni....en þar sem mamman mín er svoddan fótboltabulla kippir hún sér ekkert upp við slíkt....

Ég stakk reyndar upp á því að við tækjum bara afruglaragræjuna með...en okkar menn spiluðu snemma og því þótti Magganum engin þörf á því....

Eftir þessa átveislu fórum við heim og náðum í kalkúninn.... fyllinguna... sósuna og waldorfsallatið og hentumst upp í Reykás þar sem skyldi snætt í kompaníi við dreyfbýlistútturnar í útjaðri Reykjavíkur....

Og svo var étið og étið og étið....æi...líklega bættust aðeins meira en nokkur grömm á okkur þetta árið eins og öll önnur...en NAMMMMMMMM....sé ekki eftir neinu...fer bara að labba meira....

Fór reyndar í einn tíma á fimmtándu hæðina en það var eiginlega svona meira í ætt við sjúkraþjálfun...fer samt kannski aftur....

Veit ekki hvort Magginn er samt til í það...því að er slysagildra þarna og AUÐVITAÐ lenti hann í henni...en ekki hvað???? Segi ekki meir... neibb.... ekki spyrja....

Allavega...fórum í afmæli á annan í páskum og það var hann litli Kristján Arnór sem varð 7 ára þann átjánda...TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ SÆTI!

Sigrún vinkona átti líka afmæli sama dag og aðeins áður, þann níunda, átti frænkugullið mitt, hún Salvör, líka afmæli...TIL HAMINGJU FLOTTUSTU!!!!!

Fínir páskar að baki og nú er bara að telja niður í sumrfríið!!!

Ég lengdi reyndar fríið mitt og var heima í dag....var að pakka Minnstunni niður...daman á leið á skíði á Akureyri í fimm daga og svo fer hún á Reyki í aðra fimm...svo þetta verður kannski voða skrýtið hérna hjá okkur Trönuhjallatöffurunum...engin Minnsta..buhu...

Verður samt voða fjör hjá henni...ömmu og afa og Gummanum...Kristínunni og Kristjáninum....AÐAL skíðatöffararnir....

Ég get svarið það...það er ekki komið miðnætti og mér er að takast það...na na nabú bú....þá VEIT ENGINN hvenær ég fer að sofa...he he...en það er oft aðal umræðuefnið í kaffistofunni og í vel völdum símtölum sem ég fæ....

MUNIÐ: Að vera stillt og góð og knúsa alla í kringum ykkur...

EINN Í RESTINA:

Sturla litli er sá klárasti í bekknum og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin.

Svo að hann hefði nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann auka spurningar. " Sturla minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurningar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir"

"Enginn", svarar Sturla. "Hvað meinar þú enginn", spyr kennslukonan "Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu"  segir Sturla

Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"

Örstuttu seinna réttir Sturla litli upp hendi. "Já Sturla " "Má ég spyrja þig einnar spurningar" "Endilega" segir kennslukonan.

"Ókei, 3 konur standa við ísbíl og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift" Spyr Sturla. Kennslukonan roðnar og segir,

"Eee.ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn eða eitthvað" "Neeiiii" segir Sturla litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar"

Ha ha ha....

Lovjú!

 

 


...SÚKKULAÐIÓRATORÍA....

 

GLEÐILEGA PÁSKA ALLIR SAMAN!!!! 

Þá er páskaeggjaleitinni lokið þetta árið...he he...en ef þið hefðuð gaman af að spreyta ykkur þá er hann hér....
Svörin koma í næsta bloggi....thí hí... 


PÁSKALEIKUR 2008....
LEITIN AÐ EGGJUNUM GÓÐU...
 
 


FYRSTA VÍSBENDING:
 

Árla morguns eldhress mamma
eitruð fer um hús að þramma
hennar fyrsta verk er það
að koma við á einum stað
brátt fer býtið hér að hljóma
dúerttinn er þeim til sóma. 


 
ÖNNUR VÍSBENDING:

Stundum verður mönnum mál
þá meiga nota vissa skál
þykir gott í góðu næði
að athafna sig, gera bæði
þarfaþing þar nálægt er
í lokin fléttuð þjónar þér.


 
ÞRIÐJA VÍSBENDING:

Er flutningunum loksins lauk
í horni áttum engan hauk
úr Ógeðshúsi í stofu gnæfði
okkar huga ákaft æfði
í Sorpu sendum ferlíkið
á sama stað bættist betra við....


 
FJÓRÐA VÍSBENDING....

Teppahrúga huldi það
í öðru húsi, á öðrum stað
gagnlegt reyndist ekki vera
þurfti sjaldan þungt að bera
aukakíló ættu að fjúka
ef einhverjir nenntu á þetta að rjúka....


FIMMTA VÍSBENDING:

 
Þegar flíkur fara að skitna
á þessu fer endalaust að bitna
margar gerðir má víst finna
sem lykta bara meira og minna
ósköp vel en þessi er best
mamma notar hana mest....


 
SJÖTTA VÍSBENDING:

Sænskir frömuðir fundu út
að fúlt það er að sitja í hnút
því lögðu þeir heilana sína í bleyti
og sendu svo hver öðrum heillaskeyti
þeir fundu lausn sem þótti flott
að sitja á Hermanni er svo gott.....


SJÖUNDA VÍSBENDING:

Ein jólin fannst henni mömmu svo svalt
að gefa það sem væri ei kalt
hún arkaði um og leitaði vel
og vandaði valið, ég sannlega tel
á góðum stað hangir þessi snilld
sem bóndinn nú getur víst notað af villd....


 
ÁTTUNDA VÍSBENDING:

Hann pabbi kom eitt sinn heim með hann
og mamma starði á gefandann
því eitt sinn hún fleygt hafði einum slíkum
fékk ógeð á gripnum og öllum hans líkum
því fitugur verður og forugur gjarna
þótt vinsæll hann teljist nú oft meðal barna....


 
NÍUNDA VÍSBENDING:

Úff, ef þú opnar og veist ekki betur
en tekur þá áhætt að sjá nú hvað setur
er öruggt að nebbinn þinn kvarti og kveini
en fýluna geymir þó staðurinn eini
sem betur fer fylgdi hann húsinu góða
og geymir nú hluti sem inn vilt ei bjóða...

 
TÍUNDA VÍSBENDING....

Á páskunum ætlum að hafa það náðugt
þó fólk vilji alls ekki telja sig gráðugt
á stað einum stendur eitt ferklíki núna
sem stikna mun síðar, fá húð á sig brúna
sem ungabarn útlitið getur þig blekkt
en þó er nú kvikindið alls ekkert kvekkt....


ELLEFTA VÍSBENDING:

Í sumar mun sólin á himninum dvelja
sólarvörn búðirnar ört munu selja
þá getum við kúrt þarna sólbrún og sæl
án kallsins í neðra, nú er ekkert væl
en grannarnir umhverfis njóta þess líka
þar ef til vill myndast mun ágætis klíka...


 
TÓLFTA VÍSBENDING:

Í kuldanum kunna þeir langbest við sig
en langar þó gjarnan að dekra við þig
þeir elska að láta þig halda á sér
og helst vilja gefa þér bita af sér
daprir í bragði ef enginn þá sækir
en arga af gleði ef í þá þú krækir....


 
ÞRETTÁNDA VÍSBENDING:

Opnast þessi oft á dag
á henni kunna flestir lag
bak við handfang holan dimm
leyndardóminn geymir grimm
óttast þarf þó enginn það
að koma við á þessum stað...
.
 

FJÓRTÁNDA VÍSBENDING....

Einu sinni í poka var

varningur sem ilminn bar

nytsamlegra þótti þá
í þennan merka hlut að ná
nú raðast pokar einn og einn
í hólk sem stendur alveg beinn....


 
FIMMTÁNDA VÍSBENDING:

Sýprusarnir saman tveir
stóðu í þessum, en síðar meir
hent þeim var á ruslahaug
því sólin úr þeim kraftinn saug
undirstaðan enn er hér
útiloftið um þá fer....


SEXTÁNDA VÍSBENDING:

 
Lítil skotta laumast til
að lúra þar, ég hana skil
þarna kúldrast lengi getur
þótt sjaldan gert það hafi í vetur
að vera þar þó telur svik
ef gert hún hefur skammarstrik....


SAUTJÁNDA VÍSBENDING:

Sending barst á heimilið
það brugðust flestir glaðir við
en einn þó kættist allra mest
því þetta reyndist honum best
hluti þess sem fjarlægt var
býður núna förgunar.....


ÁTJÁNDA VÍSBENDING....

Laugardagar leyfa það
að leita eins á vísum stað
með krónkalla í krumlu ferð
og kaupir sætt af bestu gerð
í fötu berð það ekki heim
því heldur ei með höndum tveim.....

NÍTJÁNDA VÍSBENDING:

Það er svo skrýtið með einn stað
að þó ei nokkur viti það
þá heimsfrægð gæti falið hann
ég útskýringu enga kann
skilaboðin berast bara
honum framhjá ei þau fara.....


TUTTUGASTA VÍSBENDING:

Unaðslegan ilminn ber
út í eldhúsið hjá þér
sparigræja þarna situr
óskaplega ein og vitur
glæný hefur ekki enn
bakað oní neina menn....


TUTTUGASTAOGFYRSTA VÍSBENDING....

Um vefinn getur flakkað glaður
skoðað allan heiminn, maður
getur orðið þreyttur, lúinn
algerlega tæmdur, búinn
huggun mun þín sjálfsagt vitja
þú heppinn ert að fá að sitja....


 
TUTTUGASTAOGÖNNUR VÍSBENDING:

Húsbóndinn fann góða leið
sem varð honum ósköp greið
vildi hvíla huginn þreytta
athöfn finna nýja, breytta
tók sér litaflóð í hönd
framkallaði höf og lönd...


TUTTUGASTAOGÞRIÐJA VÍSBENDING....

Úr Hafnarfirði bárust þeir
saman komu báðir tveir
þar hvílum gjarnan þreyttan kropp
þömbum gos og étum popp
til stuðnings fylgdu mjúkir með
þeirra njótum eftir streð....


TUTTUGASTAOGFJÓRÐA VÍSBENDING....

Glamrandi og glymjandi
gaulandi og rymjandi
tólið getur glatt þitt geð
þér gaman finnst að raula með
Skalinn upp og niður æðir
Áheyrandinn á því græðir....


TUTTUGASTAOGFIMMTA VÍSBENDING....

Nornafundi mamma sækir
málin ekkert frekar flækir
sambandi fær oftast náð
fyrir því við getum spáð
finnst þó best að geyma spil
á stað sem börnin ei ná til......


SÍÐASTA VÍSBENDINGIN:

Þreytan ykkur þjakar nú
á því hef ég nokkra trú
en ef þið viljið eggin finna
gæta verð hér orða minna
heimasætan hefur stað
sem gæti núna verðskuldað
heimsókn þriggja ærslabelgja
sem langar egg í sig að svelgja
hærra en hausar ykkar ná
gáfulegast er að gá...ójá.....




Það tók grísina þrjá 76.mínútur að finna eggin sín...og voru þau bara lukkuleg með það!!!!!

 Eigið góðan dag!!!!!

...STIKLAÐ Á STÓRU...EÐA...Í STUTTU MÁLI...HE HE...


Bloggedí blogg og bluggedí blegg....loksins hef ég tíma til að setjast niður og blogga....er næstum komin með fráhvarfseinkenni...bjargar mér að ég blogga dagbók deildarinnar minnar daglega....he he.....

 
Wów...það er svo margt búið að vera í gangi síðan síðast...en svona til að þetta verði ekki etór partur af ævisögunni neyðist ég til að stikla á stóru....



Fyrstu helgina í mars...he he...var ég með tvíburakrúttin og ég get sko sagt ykkur það að það var sko fjör !!! Þau eru svoooo skemmtileg og fjörug....og það vella út úr þeim gullkornin....

Sú helgi var reyndar frekar þéttskipuð á þessum bæ...en við náðum að púsla hlutunum...og njóta þess að leika með þeim...

Þennan laugardag fór ég í vinnuna að taka foreldraviðtöl...vaknaði við sönglandi Fríðu Dís...Ég er búúúúin!...og var smá stund að átta mig hvaða hljóð þetta væri....skaust svo framúr þegar ég mundi hverjir voru í heimsókn og rauk fram til þeirra...Naut þess að nostra við þau þar til ég þurfti að fara að taka foreldraviðtölin og þá tók Magginn við....hann fór reyndar líka í vinnu...og þá tóku guttarnir við....

Minstan var nebbla í dekri hjá ömmu Fríðu og kom svo seinni partinn til að leika með litlu krílunum....Daði fór líka í vinnu svo Elstimann var „pössunarpía" þar til ég kom heim...en varð svo að halda áfram því starfi þegar ég fór í frænkuboðið góða hjá Nínunni og þangað til Magginn var búinn í vinnunni...flókið....

Í frænkuboðinu var rosa gaman...mikið hlegið og stemmningin flott....ég er strax farin að hlakka til næsta fundar....enda á ég ógeð skemmtilegar frænkur...



Restin af helginni var svo óplönuð svo við gátum tjillað og leikið...bakað súkkulaðiköku og vöfflur og poppað popp í poppvélinni sem tvíburunum finnst geggjað kúl....

Svo tók við vinnuvika...fundir...nornakvöld...föndurkvöld og fleiri fundir....og svo rann THE Árshátíðardagur upp...laugardagurinn 8.mars....Kópavogsbær á útopnu...GB og co að splæsa....


Þann dag átti Magginn frí...svo við tjilluðum helling....ég fór og keypti mér gervineglur og alles...megabeib...og var ógó flott í kjól af Bryndísinni minni bestu...sem ég heimsótti kvöldið áður og fékk að máta kjóla fyrir peninginn....kúúúl....

Mættum í fyrirpartí hjá stjóranum og skemmtum okkur þar þangað til rútan brunaði  á svæðið og öllum var smalað út....hey hey hey...hó hó hó...
 



Fífan var vandlega skreytt...hvítt og kristall var þemað í ár...og fordrykkurinn nammigóður....

Við fengum borð úti við Kópavogslæk...nærri því....og vorum soldið laaangt frá sviðinu...en það var allt í lagi því við erum svo skemmtileg og gátum hlegið og skemmt okkur sjálf...nei nei...það voru skjáir út um allt...og skemmtiatriðin voru meiriháttar... Diddú algjör perla...Magninn MEGAgóður....Ljótu hálfvitarnir í banastuði og Buffið og Mattinn sáu svo um að láta okkur svitna til hel....



Og haldiði ekki að Mattinn...megakrúttið...hafi ekki verið búinn að vinna heimavinnuna sína...og læra lagið MITT...MÍKAslagarann Grace Kelly sem hann gat ekki sungið í fyrra....ohhhh...við erum að tala um tæra snilld....TAKK MATTI !!!!
Mika er sko ennþá mitt uppáhald....bara geggjaður....

Magginn trítlaði um salinn og tók myndir þar sem hnéð hans leyfir ekki mikið sprikl...en þegar vélin varð batteríslaus laumaði hann sér út á gólfið til mín og tjúttaði smá...enda EKKI hægt að sitja á rassinum þegar Buffið og Mattinn eru á staðnum....no way....



Þar sem við dönsuðum svooo mikið var enginn tími til að drekka...eins og við séum eitthvað vön því svosem...svo við spruttum á fætur á sunnudeginum í banastuði, löbbuðum og sóttum bílinn og fórum í heimsókn í Reykásinn...enduðum þar í mat og komum heim seint og um síðir....

Svo kom önnur vika..he he...með nornakvöldi....föndurkvöldi og bíókvöldi....en Magginn og ég áttum alltaf eftir að gerast svo fræg að sjá Brúðgumann...díses....ég emjaði af hlátri þarna i sal fimm...þar sem var frekar fámennt..en góðmennt...og sem betur fer fannst hinum þetta fyndið líka...annars hefði ég líklega
eyðileagt kvöldið fyrir einhverjum...nei...segi bara svona....



Alla vega...fyndin og flott mynd og mann dauðlangaði að fara út í Flatey og fá sér rauðvín í sumarnóttinni....og verða pínu geðveikur...allavega nett ruglaður...smá.....

Á föstudagskvöldið fórum við á Bingó hjá Oddfellow...sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema hvað Miðormurinn minn VANN aðalvinninginn...eftir HARÐA viðureign....mikinn hjartslátt og sveitta lófa....það þurfti nebbla að draga um vinninginn þar sem þeir voru tveir sem fengu Bingó á sama tíma...úbbosí....Miðormurinn dró HJARTATÍU...en hinn strákurinn TÍGULNÍU... svo jafnara gat þetta ekki verið...
En...tían vann...og gaurinn minn fór heim með 19 tommu flatskjá...sæll....þarf að ræða það eitthvað????!!!!

Þvílíkur ljómi í augum...þvílíkt bros á einu andliti...þvílík HAMINGJA hjá einu barni...ó mæ god!!!!

Ég hefði ekki viljað vera mamman sem þurfti að hugga svekktan strák sem varð að láta sér nægja páskaegg í sárabætur.... úff...æj æj...

Í lokin fengu svo öll börn páskaegg...og auðvitað fengu margir skemmtilega vinninga...svo það voru lukkulegir krakkar sem héldu heim í hráslagalegri nóttinni ....


Það var samdóma álit heimilisfólksins að maður setur ekki nýtt sjónvarp upp í ruslaralegu herbergi...svo þríeykið tók herbergið í öreindir....snéri öllu við....endurraðaði mubblum... ryksugaði... skúraði og þurrkaði af...og þegar Magginn kom heim úr vinnunni var Gumminn með í för og þeir festu upp þetta flotta tæki....sem nú trónir þarna svo hátíðlegt og glænýtt....

Þennan laugardag gerði ég nokkuð sem ég hef aldrei áður afrekað...svo ég muni ....í seinni tíð....soldið gloppótt...en við fórum á fætur um átta... JÁ...ÁTTA á laugardagsmorgni...og hittum sjúkraþjálfarann okkar í World Class...uppi á fimmtándu hæð...wów...soldið mikið hátt...en ógeð flott útsýni...enda dagurinn hrikalega fallegur...sólríkur og bjartur...svo maður sá allt....fjöll...jökla....byggingar og náttúru...eins og það gerist best....bara flott!!!!
Ekki leiðinlegt að svitna með svona dýrð fyrir framan sig...



Fór svo í Bónus...til að ná í smotterí...og rölti heim með það í sólinni...en Magginn fór að vinna....endurnærður og hress...

Þar sem ég var hrikalega glaðvöknuð fór ég að hamast....maður fer ekkert aftur að sofa á svona degi....og því var mín búin að þvo tvær vélar...setja í einn þurrkara og byrjuð að taka til áður en klukkan sló ellefu!!!! Ó mæ god...það sannaðist sko að morgunstund gefur fullt af gull í mund....en ég var að vasast í þvotti og tiltekt...þrifum og sorteringum til átta um kvöldið....og geri aðrir betur!!!!

Ausan mín mætti á svæðið til að kanna statusinn...en hún og Sigrún voru víst búnar að hringja ansi oft án þess að fá svar....sem átti svo þá skýringu að tólið lá ekki á ... obbosí... gerist stundum...og gemsinn var grafinn lengst ofan í tösku....



Við áttum boðsmiða á Hamborgarabúlluna og ákváðum að nota það...nenntum ekki að elda sko....og svo fór ég að hitta Ausuna mína og Sigrúnuna...en sú síðarnefnda er að passa húsið og hundinn fyrir Kötuna sem er að spóka sig um Flórída ásamt familíunni í þessum skrifuðu orðum....

 
Við tjöttuðum fram að miðnætti en þá var nú risið á mér orðið frekar lágt og lélegt og þreyta farin að segja til sín... hmmm...þó maður sé OFURkona þá eru nú takmörk....svo við drifum okkur heim....

Í dag var svo slappað af...farið eina ferð í Sorpu...keyrt um og leitað að flottu myndefni....kíkt í ísbúð og Bónus.is og farið í heimsókn til mömmukrúttsins og pabbalings.....sem voru eiturhress og kát...og lærðu að gúggla af okkur tölvugúrúunum... thí hí....bara tóm lukka og hamingja með það fyrirbæri...

 
Þegar heim kom biðu gestir fyrir utan,...Ásta og Jenni og strákarnir auk hundanna tveggja...svo Tanja fékk líka heimsókn...

 
Já...sei sei...alltaf nóg um að vera...

Grísirnir þrír eru komnir í páskafrí en við foreldrarnir verðum að vinna nokkra daga áður en sú himnasæla brestur á... ohhhh... hlakka svoooo til.....uhmmmm...frííí....slökun....nammi...slurp slurp....

 
Einn góður:

Það var ung og falleg stúlka sem var svo niðurdregin og hrygg að hún ákvað að binda endi á þetta allt og fyrirfara sér með því að stökkva í höfnina.Hún stóð á hafnarbakkanum og  þegar hún ætlaði að stökkva kemur til hennar ungur sjómaður og spurði hana hvers vegna hún væri að gráta.Hún sagðist ætla að fyrirfara sér. Honum fannst það synd og sagði við hana að hún hefði mikið að lifa fyrir. "Skipið mitt siglir til Ameríku á morgun, ef þú vilt skal ég lauma þér með. " Hann færði sig nær stúlkunni og tók utan um hana og hvíslaði að henni," ef þú verður góð við mig verð ég góður við þig"."Já" sagði stúlkan "hverju hef ég að tapa? " Um nóttina laumaði hann henni um borð í skipið og faldi hana í einum björgunarbátnum. Hann færði henni annað slagið mat og drykk og í hvert skipti elskuðust þau heitt og innilega.Þrem vikum seinna var skipstjórinn á venjulegri eftirlitsferð og fann hana í björgunarbátnum. Hann spurði hana hvað hún væri að gera þarna.
Hún sagði honum eins og var að sjómaðurinn væri að lauma henni til Ameríku en í staðinn svæfi hún hjá honum. Þá sagði skipstjórinn: "Þú hefur verið plötuð laglega núna, þetta er Herjólfur."



 
Ha ha ha....


Já...sæll...

MUNA: - Dreymdu stóra drauma....  en láttu þá rætast með því að fara fetið, taka eitt skref í einu. Hvert skref færir þig nær draumnum. Ef þú tekur hinsvegar ekkert skref, þá muntu aldrei komast á áfangastað. Aldrei að horfa á allan listann í einu, taktu eitt atriði í einu, kláraðu það og kíktu svo á næsta atriði. 
Skref fyrir skref, það er galdurinn. -


 
Lovjú hunangskrúttin mín... 



PS: Þið takið kannski eftir því að það er EKKI komið miðnætti þegar þetta er skrifað...na na na bú bú....


...HORFT TIL BAKA....

   
       

FYRIR ÁRI SÍÐAN.... 


Ég skil ei hve tíminn fær liðið svo fljótt
fyrst kemur dagur og svo kemur nótt.
Svo enn annar dagur og árið er allt
hamingjan hverful og lánið svo valt.

 Ég man fyrir ári er fegurð og ljós
fylltu minn hug þegar Blómanna rós
varð tvítug að aldri og tilveran góð
töfrandi falleg við spegilinn stóð.


 Framtíðin virtist svo vongóð og hlý
og væntingar snérust um bata á ný
svo hamingjusöm bæði brosti og hló
uppfull af blíðu og stóískri ró.


 Í Lyngholti fagnað með veislu og söng
því það komu gestir þótt leið væri löng
Og Lóa mín Blómarós ljómandi var
lífsgleði einatt í brjóstinu bar.


 Og henni til heiðurs var tónleikakvöld
haldið í bænum og gleðin tók völd.
Hún klökk sat þar heilluð með tárvota kinn
án takmarka virtist hann, kærleikurinn.


 Hún gefið gat endalaust öðrum af sér
svo einlæg og hugrökk, sem hetjum oft ber.  
Er sárþjáð af verkjum í rúminu sat
þá stutt var í brosið og hlegið hún gat. 


 Við trúðum því öll að það tækist að fá
kraftaverk til þess hún myndi því ná
að eldast og þroskast, í ellinni þá
sitja í ruggustól, gömul og grá.


 En henni var ætlað að hverfa um stund
hún kölluð var héðan á englanna fund
en minningin lifir, hún dafnar og grær
um Blómarós þá sem var öllum svo kær. 
BH 2008.

 Sakna þín, fallegust!
  
 

FULLKOMIÐ LÍF...????

 

 

 

Neinei...ég er EKKI hætt að blogga...eins og margir hafa haldið...bara voða bissí alltaf og hef því ekki haft tíma....líma...síma...gríma....
 

Er sem sagt búin að vera á fullu í félagslífinu og á fundum hægri vinstri en það er bara einn planaður fundur í þessari viku svo maður ætti að hafa smá speis...æji...má sletta smá.....
 



Síðasta vika var sem sagt ansi hraðskreið en ég tók mér þó frí í vinnunni á föstudaginn þar sem ég sá ekki fram á að ná að komast af stað í THE föndurferð nema taka daginn í að klára undirbúning....ÞOLI ekki hvað ég er skipulögð en brenn svo inni á síðustu metrunum AF UTANAÐKOMANDI ástæðum...JÁ, alltaf gott að kenna einhverjum öðrum um...ekki að maður gæti hafa gefið sér meiri tíma...neibb....döh....
 

En þessi blessaði dagur var ekki alveg sá mesti happa ever.....ónei....ÞAÐ FÓR ALLT ÚRSKEIÐIS SEM GAT FARIÐ ÚRSKEIÐIS...já SÆLL...þarf að ræða það eitthvað???
 

Vakti nú grísina þrjá á sómasamlegum tíma og sendi í skólann...ætlaði svo að halla mér litla stund áður en ég færi í sjúkraþjálfunina en að sjálfsögðu missti ég bara algerlega meðvitund...gleymdi að endurstilla klukkuskrímslið og SVAF yfir mig eins og hver annar unglingur...og Magginn hraut alveg í takt við hliðina á mér....við erum að tala um að mæta klukkan tíu gott fólk...ekki hálfátta eða átta sem ég geri daglega....
 

Rankaði við mér um tíu...OF sein...og ákvað þá að vera bara slök....og hefja lokaundirbúning.....geta svo bara tjillað... bloggað...lesið blöð....fram að brottför....
 Kláraði að pakka því sem ég átti eftir af fötum...allt orðið þurrt og fínt og tilbúið til pökkunar...og svo var brunað í Smáralindina að ná í MYNDIRNAR sem átti að skrappa...en þær fór ég með á miðvikudag og hélt að ég gæti fengið samdægurs...enda lykill bara settur í samband við tölvu og myndirnar komnar á skjáinn....ekki vesen....bara ýta á print og málið dautt ... eða...NOT....

!
Það tók TVO daga að koma þessum myndum á pappír....og mín var ekki alveg að kyngja því....TVO HEILA daga...svo ég mátti koma á mánudag að sækja......en það hentaði minni ekki alveg enda að fara út úr bænum að skrappa ekki seinna en á slaginu fjögur á föstudag....svo Herra Pedersen aumkaði sig yfir æpandi fljóðið og lofaði að bunkinn yrði klár klukkan tíu á föstudegi....frábært!!!!
 

En-í Smáralindinni fannst EIN mynd á kortinu sem maður framvísar til að fá myndirnar sínar...EIN mynd og af algerlega ókunnum strákormi...svo mín nærri snappaði....enda ekki lengi að skrappa eina skitna mynd...hvað þá af einhverjum óþekktum aðila....
Herra Pedersen ákvað að redda málunum...enda fundust myndir á mínu nafni í tölvunni...óframkallaðar....en ég mátti renna við á laugavegi um þrjú og hirða upp herlegheitin.... 

Ég fór því að byrgja mig upp af einhverju smáræði til að éta...EF ég fengi nú ekki nóg af sameiginlega matnum....og keypti svolítið handa heimilisfólkinu líka sem var frekar spælt að fá ekki að fara með í bústað....sjálfa Júróvísjónhelgina...og konudags....
 

Magginn fór í vinnuna og ég kláraði að koma matnum í töskuna.....föndurdótið var þegar klárt...enda mín SKIPULAGÐA búin að finna pappír og pakka öllu sem átti að vera með...ekki málið....og tryggja nægar límbirgðir...því það vill engin almennileg skrappkona verða uppiskroppa með lím í föndurferð...neineinei....
 


 
Er samt búin að leita dauðaleit að albúminu sem á að hýsa fermingarmyndir Miðormsins.....en þrátt fyrir góðan vilja er þetta blessaða albúm algerlega týnt og tröllum gefið....
 Þar sem ég var nú búin að öllu...fara í bað og sjæna mig alla....ákvað ég að gera eina tilraun enn....og leita að þessu blessaða albúmi...enda mundi ég eftir einum kassa í geymslunni sem ég átti eftir að kíkja í....

Svo mín stormaði niður...og smeygði sér inn í alltof fulla geymsluna....nebbla svoddan kríli skiljiði...já...ég smeygði mér inn og lokaði á eftir mér...og teygði mig í þennan kassa sem ég hugðist rannsaka og var svo innilega farin að trúa að geymdi albúmið góða....en þá gerðist hlutur sem ég VISSI að myndi gerast en TRÚÐI EKKI að gæti gerst....því kassadj.....var þá svona mikill lykilkassi að þegar ég kippti honum út úr hillunni HRUNDI ALLT heila klabbið yfir mig....HVER EINASTI kassi fór á flug og mín stóð bara þarna og reyndi að forðast að fá kassa í hausinn...eða aðra lauslega hluti....stóð þarna eins og asni og hló móðursýkislega....föst í haug af kössum og í soldið vondum málum...lalla lalla la.....
 

Á þessu augnabliki upphófst hugsanaÞEYTINGUR í hausnum á mér....ég var ein heima...enginn að sakna mín fyrr en ég yrði sótt í ferðina góðu.....enginn gemsi í geymslunni...enginn á ferðinni á geymsluganginum og líklega bara enginn heima í húsinu...obbosí....
 

En maður dettur nú ekki dauður niður úr ráðaleysi...svo míns fór að hamast við að koma þessum leiðindakassa á sinn stað og rétta við hilludruslurnar.....og blaðrandi út í eitt náði míns að koma öllu draslinu aftur á sinn stað...losna tístandi úr prísundinni og þramma hlæjandi af skömm upp stigann og inn til mín...með ekkert albúm....
 

Well...Róm var ekki byggð á hverjum degi...svo míns ákvað að gefa upp vonina...enda margra daga leit afstaðin...og fara bara ekkert með þetta helv..albúm út úr bænum....en vinna það bara á lausum blöðum og setja svo inn þegar það ákveður að skríða fram í dagsljósið....
 Náði sem sagt að gera allt...nema blogga....og var voða lukkuleg þegar Elnan renndi í hlað og ferðin hófst.....jibbí!

  

En...ekki mátti nú gleyma að koma við hjá Herra Pedersen og kippa upp fína myndabunkanum....svo þangað var brennt og átti að taka STUTTA stund....
 Herra Pedersen og hans fólk var að renna síðustu myndunum í gegn svo míns ákvað bara að borga sem snöggvast...en þá kom nú babb í litla sæta bátinn....því Pedersen gamli heimtaði tíuþúsundkall fyrir fíneríið....eða helmingi meira en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætluninni.... 

Missti mig EKKI en spurði afar köld hvort væri mögulegt að þeir væru óvart að prenta tvisvar það sama...en það reyndist ekki vera.....
Bað þá um að fá að sjá útprentaðan lista yfir framkallaðar myndir....og sá að stóð ferming....ferming.... ferming...a.m.k tvöhubdruð sinnum...en svo kom nýr texti.... Marbakki... Marbakki...Marbakki....og þarna lá þá hundræfillinn grafinn... !!!

Stelpugerpið sem afgreiddi mig og setti lyklana tvo í tölvuna....með fyrirmælum um að framkalla TVÆR FERMINGAR...hafði líklega bara ekki merkt neitt við...svo allt innihald lykilsins var bara sett í framköllun.... en..tú..tre....
 

Míns tók ekki í mál að taka við þessum fjallháu bunkum af myndunum fjögurhundruð og veit ekkihvað...en samdi um að leysa út fermingarnar og skoða svo málið í rólegheitum á mánudag....
 Þetta var sem sagt FJÓRÐA ruglið þennan daginn...fyrst svaf ég...svo voru ekki myndir...svo fékk ég geymsluna í hausinn og loks óumbeðinn OFURskammt af framkölluðum myndum.... HJÁLP...HERRE GUD Í HIMMELEN...HVOR I ALVERDEN ER DU?????? 

Obbobobb....var að íhuga að hætta við ferðina af ótta við fleiri áföll og að koma samferðamönnum í klandur...en vinkonur mínar elskulegar bökkuðu mig upp...allt þegar þrennt er og fjórða fullkomnað......svo ég fór með....og við vorum á Áætlun!!!!!
Alger snilld.... 



Komum í ískaldasta bústað sem sögur fara af...en þar sem við erum óvenju ástríkar...hlýjar og yndislegar konur...náðum við að hita hann svo vel upp að liðið var bara á hlýrabolum alla dagana....
 

Það þarf náttla ekki að tíunda það að ferðin sjálf var tær snilld og allar fínu myndirnar voru límdar á sinn stað....og dekrað við sig...mikið...mikið....STUNA....
 

Þetta var sko ALVÖRU föndurferð...full af mat...sem meistarakokkurinn Inga beib sá um að malla...og við hinar skutum inn einum og einum rétti svona til að vera memm....
 



Það er ekki ofsagt að kílóin bættust aðeins við þessi fáu aukakíló sem fyrir voru...og það stefnir nú ekki í að míns verði neitt megabeib á næstu dögum...þarf aðeins að bremsa og taka til í kroppnum...til að eiga svo mikið sem tilkall í þess háttar nafnbót...he he...
 

Míns nennir samt ekki á neitt Herbalife kjaftæði eða Hydroxycutdæmi....en ætlar að vera duglegust að labba heim úr vinnunni á daginn...sem er góður klukkutími og afar hressandi á svona köldum vetrardögum....
 

Móttökunefndin á heimilinu...skipuð af grísunum þremur aðallega....var svo búin að gera allt voða hreint og fínt....taka til....ryksuga og skúra...sortera þvott og þurrka af ryk...og skreyta ganginn og útihurðina með alls konar seríum í öllum litum...og semja ljóð handa mömmunni sinni.....bara sætust!!!
Og á koddanum lá líka bréf....sniff sniff...svoooo sætt...eins og maður hafi verið að heiman í ár og öld.....er annað hægt en knúsa gengið í klessu????? 
Maður bara klökknar og finnur tárin þrýstast fram á svona fallegum og hreinum stundum...þar sem maður fær ALLT sem hægt er að fá....í hjartað sitt....ENDALAUST TAKK KRÚTTIN MÍN BESTU!!! 
 

Fór í mína heittelskuðu vinnu í dag og fannst ekki slæmt að knúsa krílin mín...eftir allt þetta frí....litlu snúðarnir mínir....
 

Kíktum á Kristnibrautina smástund og renndum svo í Reykásinn að sækja skíði fyrir Minnstuna sem ætlar að vera í Bláfjöllum með skólanum á morgun....og meika það....
 

Það eru náttla allir lukkulegir með Júróbandið...enda stóðu þau sig best þetta kvöld....og því öllum vinum og ættingjum skipað að kjósa ÞAU....
 

Elsku stelputryppið í Mercedes Club var ekki alveg að gera sig þetta kvöld...átti slæma innkomu og náði sér aldrei...enda ung og óreynd...sem hentar kannski ekki heldur í langtburtistann..... kemur bara betri og reyndari næst....með trukki og dýfu...og tveimur vaxtaræktartröllum...vel tönuðum....úllala....
 

En Friðrik Ómar og Regína Ósk eru flott og eiga örugglega eftir að gera pottþétta hluti þarna úti í keppninni...tala nú ekki um þegar sjálfur PALLINN er á staðnum líka....og lóðsar þau í gegnum alla dramatíkina....wów....!!!
 

Haldið þið að nóttin hafi ekki læðst hérna aftan að mér án þess að ég tæki eftir og læst svörtum krumlum í mig...svo ég neyðist til að láta undan þrýstingi og hefja hrotur.....zzz...
 



MUNA:
Jafnvel þótt þú hafir farið illa út úr lífinu getur þú komist í gegnum það með hjálp trúar og hugrekkis.
( neineinei...ég samdi þetta ekki....)
 

STÓRT KNÚÚÚS!!!!


....NA NA NA BÚ BÚ...EN ÞÚ?????

                    


Sunnudagur...enn einn slíkur að kvöldi kominn og ný vika í startholunum...pottþétt full af skemmtilegum uppákomum og viðburðum...þannig er það alltaf...

Og ég á flottasta hund á Íslandi...sem heitir Tanja...og er að brosa til þín núna....na na na bú bú......

En....


Vikan sem leið var fín...og flaug í gegn...

Í leikskólanum misstum við okkur nett í geggjaðri innkaupaferð... keyptum fuuuult af flottu dóti og ELDRAUÐAN leðursófa á deildina og ég er að tala um TÖFF sófa...bjútífúl....við erum svo montnar af honum og öllu fíneríinu að það hálfa væri nóg...
Og börnin voru svoooo glöð...nýtt dót og ný rennibraut!!!! (sá rauði..) bara truflað!

Þurfum kannski að fara að baka kleinur og selja klósettpappír fyrir þessu ...en skítt með það...ekki málið....nei grííín...við áttum péééning og máttum alveg missa okkur....eða...????

Notuðum skipulagsdaginn á miðvikudag til að koma öllu fyrir... henda drasli og ónýtu dóti...og gera deildina mest krúttaða....og það gekk bara vel...ætluðum varla að tíma að fara heim...það var sko alveg endalaust hægt að nota þennan tíma....Alltaf gaman....

Væri ekki leiðinlegt að mega missa sig svona hérna heima líka...kaupa húsgögn og innanstokksmuni og henda bara gamla draslinu...yngja upp pleisið og verða INN....panta svo eina góða utanlandsferð fyrir sumarið og kaupa jeppa fyrir afganginn ... döh...
                        
Æi, þetta drasl skiptir ekki neinu máli...aðalatriði er að líða vel og vera sáttur...og það erum við svo sannarlega....


Minstan er meira að segja farin að sofa á næturnar og orðin sátt við draugana sem fylgja okkur...farin að venjast þeim og hætt að láta þá trufla sig...he he....þökk sé elskulegri Bíbí....

Nornahópurinn er kominn á fullt og nú er það allt saman að detta í fínasta skipulag....hlutirnir í röð og reglu...ekkert vesen.... Sigrún mætt...sæll....komin plön og vinnuskipulag...Verður alltaf meira og meira spennandi....get varla beðið eftir næsta fundi...múhaha....

Tengdapabbi átti afmæli í gær...TIL HAMINGJU ELSKU BJÖSSI AFI !!!!
Heiðruðum hann að sjálfsögðu með nærveru okkar....fengum kökur og læti...og áttum kósí dag í Hafnarfirðinum...
                       
En - það vantaði litlu tvíburakrúttin mín sem eru að slást við hana Flensu Frekju...oj bara...sú ljóta drusla er að gera þeim lífið leitt...þau eru með hita og kvef og hausverk og magaverk og það er sko hundleiðinlegt þegar maður er bara fjögurra ára og afi manns á afmæli....
Iss..missa af kökunni...og fá ekki að fara í kjólinn og skyrtuna...ógeðslega fúlt...BANNAÐ AÐ SEGJA ÓGEÐSLEGA....thí hí....

V
ið enduðum afmælið á því að fara Í HÓPFERÐ á Hróa hött og slafra í okkur hambó og pizzum fyrir peninginn....laaaangt síðan við höfum komið þarna....og það voru sko ekki margir aðrir en við á staðnum...hmmm...af hverju????
Sæll...þarf að ræða það eitthvað....?????

                         
Nú fer að líða að þessari blessuðu úrslitakeppni í Júróvísjón þeirra RÚV manna og þar sem ég var víst valinn „kosningastjóri" fyrir Júróbandið í minni sveit þá segi ég ykkur hér mað að kjósa Friðrik Ómar og Regínu...Já, kjósið þau!...því þau eru með rétta lagið og rétta andann...hann frá Dallanum góða og hún mágkona hennar frænku minnar...já...kjósa þau pípúl...verðið ekki fyrir vonbrigðum með þennan dúett..hmmmm...þau eru sko algerlega klár í slaginn....ættu alveg að geta meikað það í Langtburtistann og ekki skemmir fyrir að Pallinn er búinn að komast í textann og enskuvæða...þetta er bara töff....
Mér finnst reyndar hey hey hey lagið líka töff...en það vantar kraftmeiri söngkonu í það lag að mínu mati...hittið er kúl og Partý Hans og Gilzenegger eru flottir á sviðinu...en daman í forgrunni er ekki að gera neitt fyrir lagið...svo ég mæli enn og aftur með Frikkanum og Regínunni....KOMA SVO!!! Nota gemsann á laugardaginn!!!!! X - Júróbandið....

Verð samt að játa að ég hef ekki heyrt fleiri lög....he he.....

                           

Ef þið heyrðuð í Hemma Gunn í dag þá var náttla Júróbandið í banastuði hjá honum....ógó góð...og ef þau eru alltaf svona þá er þetta náttla ekki nein spurning...þau fara bara í Júróvísjón og meika það...og málið er dautt....

Hlustið bara. http://www.myspace.com/fridriksings

Fyndið...það er búið að draga þessa undanúrslitakeppni svo á langinn...margir mánuðir síðan fyrstu laugardagslögin fóru að hljóma....og allir eiginlega orðnir leiðir á þessari langloku.... maður spyr sig hvort þetta eigi kannski að vera svar RÚV við Idolinu og X-factornum...keppni um áhorf og svoleiðis...nei...segi bara svona...en þetta er alla vega ekki að gera sig ef það er málið...og þó????



Stöð 2 svarar með Bandinu hans Bubba...he he...verður nett áhugavert að fylgjast með kónginum og vali hans á söngvara fyrir bandið!!! Sterkir aðilar komnir í úrslitinn og ekki létt verk að vinna sig út úr þessum snillingum....
Veit ekki alveg á hvern ég veðja...en finnst bæði Eyþór frá Dallanum og Hanna úr Álverinu ógeð góð......
Takið eftir hvað Dallinn er sterkur....Mattinn flotti...Friðrik Ómar...Tjarnarkvartettinn....Hundur í óskilum...Eyþór....wów...

Fékk þessa pælingu senda á meilinu:

Í hverju ætli sé best að fjárfesta í dag ?????
Hér fyrir neðan eru smá pælingar um hlutabréfamarkaðinn, og í hvaða hluti væri skynsamlegast að eyða ef maður ætlaði að fjárfesta fyrir 1000 kall...

Ef þú hefðir keypt hlutabréf í Nortel fyrir þúsund kall fyrir ári síðan, þá væru þau 49 kr. virði í dag.

Ef þú hefðir valið Enron þá væru bréfin þín 16,5 kr. virði miðað við að  höfuðstóllinn hefði verið 1000 kr.

Ef WorldCom hefði orðið fyrir valinu væru aumar 5 kr eftir.

Ef þú hefðir eytt 1000 kalli í Delta Air Lines væri verðmæti þeirra 49 kr.í dag.

En, ef þú hefðir bara farið í Ríkið og eitt þúsund kalli í bjór í dós, drukkið hann, farið svo með dósirnar í endurvinnslu, þá ættir þú 54 krónur.

Þetta eru skilaboð sem ein vinkona fékk send frá manninum sínum með þeim fyrirmælum að koma við í Ríkinu á leiðinni heim og kaupa fyrir hann bjór...
Hvernig getur maður neitað svona skynsemi?



Ha ha ha...

Förum hress og kát inn í nýja viku...látum ekki veðurófétið trufla geðheilsuna...hlæjum frman í regnið og ullum á rokið....þetta endar einhvern tíma...verið viss...

MUNA:
Vingjarnleg orð eru eins og sæti í flugvél.Þú getur komist á áfangastaðinn án þeirra en með þeim er flugið miklu þægilegra.


Lovjú!


..MUNNRÆPAN OG HIN RÆPAN....

                                                    

Jæja...þetta hafðist allt...svei mér þá....bollurnar...saltkétið og þessi líka fína súpa..varð að gumssúpu/graut sem rann ljúflega niður...ekki svona baunabomba eins og í fyrra sem þurfti að tyggja vandlega..nú..og öskudagurinn flaug bara framhjá... ekkert vesen þar...

Minnstunni var skutlað í Reykásinn...hún var Púlari þetta árið og græddi extra á því á nokkrum nammistöðum....sem hún fór með Kristínu og Kristjáni að heimsækja, en Elnan sæta skutlaði þeim á milli staða þennan morguninn...namminamminamm....

Miðormurinn bjó sig einnig út..sá Elsti líka...en ég reyndi að segja þeim að þrátt fyrir að nammi freisti...þá séu takmörk fyrir öllu...þeir væru hreinlega orðnir of gamlir og hefðu lítið í búðarráp að gera...sönglandi og gaulandi...gætu bara keypt sitt gotterí sjálfir...vinnandi mennirnir...
Elstimann var ekki á því en eftir fyrstu heimsókn komst hann að því að þarna hafði nú mamma gamla rétt fyrir sér..þetta var frekar hallærislegt...svo hann sleppti gaulinu....laumaði sér bara burt og fór í heimsókn til góðs vinar....he he.....

Sjálf varð ég að klæðast búning þetta árið...dagur leikskólanna og allir í búning...obbobbobb...mín er ekki alveg sú mest spennta...en ég lét mig hafa það og mætti í Kleopötrumúnderingu og var flottasta prinsessan á svæðinu...með allt þetta gull....úllala...

Þar sem ég var í blessaðri öskudagsnefnd þurfti ég að poppa slatta af poppi til að setja í „tunnuna" sem kötturinn á náttla að vera í samkvæmt hefðinni...og svo var ég DJ Kleopatra og tjúnaði liðið upp í dúndrandi hopp og hí og skemmti mér konunglega...það voru allir með...tóku allir þátt...Súpermenn og Spidermenn, Íþróttaálfar og turtlesar misstu sig alveg í dansinum ásamt Sollunum...prinsessunum...böngsunum og kanínunum..og þarna var líka einn kafari.... galdranorn... nunna...Tommi og Jenni í fullri stærð....býfluga og Zorró og guð má vita hvað þetta heitir allt saman...Fjölbreytileikinn í öllu sínu veldi og allir brosandi og glaðir....

En ég væri að ljúga ef ég segði ekki guð sé lof að þessi dagur er búinn og heilt ár í næsta....nei nei...vera heiðarleg....
                       
Ég fékk nærri áfall á fimmtudagsmorguninn þegar ég sá veðrið úti og færðina...ó mæ god..hvernig í veröldinni átti ég að komast til að opna leikskólann????
Magginn haltraði út á plan og fór að moka af bílnum...ásamt fleirum....Þrír voru fastir og einn fór bara að moka tröppurnar til að gera eitthvað...
Ég reyndi að ná í einhvern til að opna en það gekk ekki...en sem betur fer komst sú sem á að opna með mér á endanum á svæðið og tók á móti fyrsta barninu....
Þegar ég kom aftur út var Magginn horfinn...ég skimaði í allar áttir og sá þá að hann var búinn að koma sér út á veg...við erum að tala um þennan sem á EKKI að vera úti þegar svona viðrar...haltrandi á „Einari" og má ekki við neinni ójöfnu...hvað þá að renna eða hrasa....díses!!!!

Hann sat þarna pollrólegur og beið...hva...ert´ekk´að koma?????

Ég komst því í vinnuna aðeins korteri of seint....geri aðrir betur á svona stundum....

Og það skiluðu sér nærri allir...nema þessir sem voru veikir....og dagurinn gekk snuðrulaust fyrir sig....
                      
Hins vegar tók ég ekki í mál að Magginn færi aftur af stað út í þennan veðurvibba og tók strætó heim....hélt reyndar að þessir gulu væru ekkert að ganga en svo birtist einn slíkur loks úti í hríðarkófinu og ég varð ógeð glöð...enda alveg að breytast í snjóbolta þarna úti....
Verslaði í Okurbúllunni Tikk Takk því hún er alveg í leiðinni og fannst ég bara helv...góð að halda kallinum heima...nema hvað hann herra Órólegur VARÐ aðeins að skreppa.....úúút...döh....

Hann er sko nebbla dottinn í ljósmyndaæði...keyrir um og leitar að flottu myndefni..fer í öllum veðrum..haltrar kringum bílinn og skýtur flasssi í allar áttir....kominn með alvöru hobbý....

Við fórum saman í sjúkraþjálfum á föstudaginn...spræku hjónin...he he...
                      
Hjóluðum hlið við hlið...voða rómó...og gerðum alls konar æfingar...obbobobb ekki þannig æfingar...meira svona þjálfunar skiljiði...ekkert húbbahúbba neitt...og hann vildi náttla ekki vera minni maður en ég...en varð að gefast upp á endanum...og leggjast í bylgjur....á meðan ég hélt áfram að gera HNÉæfingar og hjóla meira...

Þetta er svoooo skrýtið....ég hef svo oft verið í ræktinni þar sem maður er í stanslausri keppni við sig og aðra...er í sífelldri áskorun og ætlar sér stóra hluti...Þarna MÁ það ekki...bara gera allt rosa rólega...hætta ef maður finnur til...fara varlega og ekki ofgera sér....úbbs...ég kann það ekki...get ekki bara tjillað svona....óþekktargemsi...
Var farin að skora á næsta mann á hjólinu....þyngja pedalana og auka hraðann....en hann sagði mér strax að ég myndi örugglega rúlla honum upp..stór og kraftmikill maður....rétt lullaði þetta í hægaganginum...æji...þá mundi ég að þetta er SJÚKRA þjálfun....og varð voða stillt...

Besta við þetta er að ég er í þjálfun út af hnjánum...en ég hamaðist svo á hjólinu að ég lá bakk allan seinnipartinn með dj...verki í HÁLSINUM og HAUSNUM....gott á mig...þarf svo lítið til að koma af stað mígreni....endaði á að taka eina svona dúndurtöflu og sofa í hausinn á mér...

Rankaði við mér um hálfátta...þá var komið klikkað veður og tvö barnanna ekki heima!!!! Við fórum því á stúfana...út í óveðrið og fukum innan um alls konar lausamuni niður í Smáralind til að pikka upp Elstamann....
                        
É
g var mest hissa hvað það var mikið af krökkum þarna inni...og vona að einhver hafi komið þeim heim....get ekki séð þessi kríli fjúkandi milli stauranna með hálfsmíðaða turnana ruggandi í verstu kviðunum....
Minnstan var hjá vinkonu sinni og ég varð að halda í hana svo hún fyki ekki út í veður og vind...litla fisið....

Við hreiðruðum svo um okkur fyrir framan Bandið hans Bubba og Stelpurnar...og Dvd mynd sem heitir Timeline....en Elstimann fékk hana í jólagöf....

Þarna sem ég kúrði undir hlýju teppinu og japlaði á æðisbita fann ég að það var verið að horfa á mig....leit við og sá þessi líka biðjandi augu mæna á mig...ohhhh....voffakrútt...AF HVERJU þarftu alltaf að pissa og kúka á kvöldin????

Og hvað gerir maður?
                         
Skreiðist undan hlýjunni...mjakar sér í hlífðarfötin og dröslast af stað út í ÓGEÐSveðrið...með hundinn í ól....valhoppandi og glaðan...ÞANGAÐ til hann fer að fjúka.....obbosí...þá er ekki eins gaman....

Fyrst maður er kominn út á annað borð, þá er bara eins gott að þessi ræfill geri stykkin sín...það er sko ekki á dagskrá að endurtaka leikinn oftar þetta kvöldið....svo hvuttakrúttið skreiðist undir tré á endanum og sleppir því sem sleppa þarf....og dregur mig svo fast og ákveðið heim í öryggið...og við erum báðar rennandi blautar og kaldar.....svona er þetta hundalíf.....

Dagurinn í dag er búinn að vera MINN dagur að mestu leyti.... Magginn fór í tölvuviðgerðir og tók tvo yngri grísina með sér OG hundspottið...en Elstimann fór til vinar síns....
Ég var því ALein....og fannst það ekki leiðinlegt....

Tók pínu til...það var samt ekkert drasl...setti í vélar og skúraði eina umferð....hlammaði mér svo niður með blöð og tímarit og hvarf inn í annarra heima....hlustaði á tónlist og naut þess að slaka bara á....í friði....
Þó við séum brjálaðar félagsverur þá þurfum við stundum að finna eigin hjartslátt....ekki satt?????

Ætlaði svo í Bónus.is en misreiknaði opnunartímann...var því aðeins of sein...en Krónan bjargaði mér...skutlaði kjúllaborgurum og frönskum í mannskapinn....var með einn auka...því .
Anton vildi VeraHér en ekki VeraHvergi svo það var fjör í kotinu...

Þóra og Dóri duttu óvænt inn og ég var frekar undrandi þar sem drengurinn mátti jú gista....en skýringin var sú að þau höfðu verið í bíó og lögðu ekki í heiðina sökum leiðinda þæfings og hálku....Skildu því bílinn eftir en fengu far með Sigrúnu „systur" á jeppanum í gegnum óbyggðirnar.....
Þau koma svo í bæinn á morgun að sækja bílinn og kippa þá líklega stráknum með í leiðinni....he he.....

Nóttin farin að fjúka hér um allar sveitir og Magginn kominn aftur inn úr hurðinni eftir smá skrepp út í myrkrið að „flassa"..thí hí...sko með myndavélinni....hvernig hugsið þið???!!!!

Ég verð að láta þennan lista fylgja þessari færslu...get ekki annað...ég er búin að hlæja mig nærri dauða af þessu...kúkahúmorinn algerlega í hámarki....sá þetta á blogggsíðu Jónu Á. Gísladóttur...og er líka búin að fá NOKKRA pósta með þessu á meilinu....

Kúkabrandararnir eru ennþá alveg að gera sig. Ég er nú ekki þroskaðri en þetta....


Þetta er ekki fyrir klígjugjarna eða viðkvæma. Þó ber að hafa í huga... we have all been there, right?

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.
 
 Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum. 
 
Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.  
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.  
Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.  
Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa. 
Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.  
Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.  
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.  
Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert iss um að hann er á leiðinni út þversum. 

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari):Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.  

Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel útá rasskinnar í leiðinni . Hér kæmi þvottapoki sér betur en skeinipappír.  
Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.  
Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð. (þessa gerð vil ég kalla "frúk (þú ætlar að FReta en það kemur óvart kÚKur)  
Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel. 
Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.  
Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kosturinn er að þarf lítið að skeina) 

 Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.  
Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.

Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...

Ég VARÐ að kommenta þetta fyrirbæri og það hljóðaði svona:
                      
              Að skilgreina sinn eigin skít
              er skondið uppátæki
              nafnalistann næst ég lít
              nú málin ekkert flæki
              bossapappír saman brýt
              í kúkalabbann kræki....
                             BH 2008.

Ha ha ha....ÉG BRJÁLAST!!! 

Kannski maður lendi í könnun þar sem maður er beðinn um að tilgreina sinn uppáhalds....?????

Wów...ég skiiiil ekki af hverju ég tala alltaf svona mikið...nei blogga meina ég....tek ALDREI eftir hvað veður á mér fyrr en ég vista bölvað skjalið....

Ein spurning út í óvissuna:
                  
Hvort er betra að vra á bloggar.is eða blog.is?????

Get ekki valið...blogga á báðum...þó enginn viti það...er það eðlilegt????

Heimta komment...koma svo!!!! Þið þarna úti...svara mér NÚNA....!!!!

MUNA: Gefðu þeim sem eru þurfandi. Það getur verið að þú lendir í sömu sporum og þurfir á hjálp að halda.

 Lovjú krúttin m
ín!!!!


....VIKAN SEM VEIT.....


Nú er HÚN...þessi vika sem setur manni fyrir hvað skuli gera hvern dag og hvernig...Bolludagur...bolla bolla...baka bollur...
skreyta bollur...éta bollur...éta margs konar bollur...verða bollur....og svo...meðan rjóminn gúffast um innri ganga bleytum við baunir...sjóðum saltkjöt... kartöfflur.... gulrætur... rófur.... étum eins og svín...verðum eins og svín... afvelta geltir og gyltur..rymjandi... stynjandi... dæsandi... ropandi og prumpandi...og dauðsjáum eftir öllu saman þegar saltkjörið og rjóminn takast á þarna innra með okkur...en það eru engir afslættir gefnir...Öskudagurinn (sem betur fer EKKI FLÖSKUdagurinn..hikk hikk...)..er næsta porsjón og þá skal gramsað og grafið....gruflað og pælt...því eitthvað verða menn að vera...á sjálfan Öskudaginn verða allir að vera eitthvað... vakna svo á undan sjálfum tímanum....paufast í myrkrinu...koma sér í  fílíng....og hendast afskræmdur og illa ryðgaður út í svartann kuldann með tösku um öxl...því nú er það nammið.... namminamminammið...slurp..slurp....hamast við að hamstra sem mest...gúffa í sig og gleypa....smjatta smá og syngja með....ramba milli staða...finna töskuna þyngjast...röddina hverfa og tærnar kala.....skríða þá heim og setja myndir í tækið meðan gotteríið sameinast saltkjöti og rjóma....
                             
Svo er það bara pasta og súpa næstu viku...vikur...jafnvel mánuði...eða ár..úff!!!!

 
Ég á ennþá bollur...finnst svo gaman að baka....og eldaði saltkjöt oní heila herdeild...á örugglega afgang fram að páskum...íha...

Ætli megi frysta þetta????..Nei djók...það KOM heil herdeild glorhungraðra unglinga svo þetta er ekkert sérlega stórt áhyggjuefni...
                         
Trönuhjallatöffarar bara í ágætis formi...fyrir utan nokkur aukakíló af bollum og saltkéti...látum brátt til skarar skríða og skerum upp herör...förum í gönguferðir fyrir peninginn...og ræktina...þegar sjúkraþjálfarinn leyfir....þá verður tekið á því....burt með óæskilegar skvapkenndar fyllingar sem flæða undan buxnastreng og bol...ojbara....ullabjakk....gerumst fitt og flott...með skinnið strekkt og vöðvana stífa....je right!!!!

Húsbóndinn...sem er eiginlega ekki einhentur lengur...frekar svona beyglaður á hendi og....ekki alveg einfætti heldur...bara soldið haltur.....er allur að koma til og þó batinn sé hægur þá er hann að gerast....klöppum fyrir því....og svo átti félaginn afmæli á laugardaginn...TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ELSKU KRÚTTKALLINN MINN BESTI!!!! Elska þig náttla mest!!!

 
Og hún Bergþóra átti afmæli sama dag...TIL LUKKU MEÐ ÞAÐ BERGÞÓRA MÍN!!!

Það var náttla blásið til kaffisamsætis í tilefni dagsins þarna á laugardaginn og komu margir við í Trönuhjallanum til að fagna mað Magganum mínum....TAKK fyrir það öll!!!!

 
Við erum vön að fara og borða einhvers staðar á þessum afmælisdögum okkar...en við gerðum ráð fyrir að gestkvæmt yrði langt fram á nótt...svo við höfðum ákveðið að draga þá ferð fram á sunnudagskvöld.....alltaf skynsöm....
   
Það var voða kósí að sofa út á sunnudagsmorguninn og vera ekkert að flýta sér eitt eða neitt....en um kaffileytið var þó brennt til mömmsunnar og pabbalings til að háma í sig bollur...jammí....

  Mynd úr eldhúsi ættmóðurinnar...
 
Ó mæ god..mamma er eins og ég..eða ég eins og mamman mín..greinilega aldrei klár á hversu margir fjölkskyldumeðlimirnir eru...það voru sko bollur fyrir hálfan bæinn og alla sveitina þarna á boðstólnum...sá varla högg á vatni þegar stórfjölskyldan yfirgaf ættmóðurina og föðurinn...sem líklega hafa þurft að leita á náðir óskyldra aðila til að klára nammilaðið...farið á einhvern góðann stað með afganga....líklega sópað saman leikfimihópnum heim til sín í EFTIRbollur....
Þetta er ættgengur andskoti...að halda að maður sé aldrei með nóg....en sitja svo uppi með matarbirgðir fram á næsta ár eða lengur...             
                                       
Fékk reyndar bæði horn og hala þarna í stofunni hjá þessum elskum...og falsaði nokkur nöfn í gestabókina...svo henni fyndist hún ekki alltaf vera að misreikna sig...ég er svoooo nasty stundum...og svo á eg ALLTAF samsærismenn...
Og svo misstum við okkur þegar pabbalingur fór að TELJA...thí hí....algerir vitleysingar....

Well...útþanin af bollum reyndum við að brenna þeim hratt í huganum því American Style var staður kvöldsins og slóst Reykásliðið í för með okkur...sem var bara gaman því við elskum að vera í kompaníi með fleirum en okkur sjálfum....

Stællinn klikkaði náttla ekki en það var heldur enginn farinn að huga að mat fyrr en um kaffileytið á mánudag...he he....
Og þá fengu allir BOLLUR.....

Heppni að þessi dagur er bara einu sinni á ári..annars væri sko stríðsástand á litla sæta klakanum.... bolla...bolla... FEITAbolla...

Ormagormarnir eru í vetrarfríi þessa skrýtnu étistöffdaga og njóta þess í botn að sofa út...vaka frameftir...leika sér og tjilla...en Elstimann og Miðormurinn hafa þó verið að vinna svolítið í bland við annað.....

Miðormurinn fór reyndar út einn síns liðs í gær að safna vinningum fyrir Öskudagsskemmtun sem 9. bekkingar eiga að hafa veg og vanda að...og kom heim með þvílíka magnið af flottum hlutum....Fjársjóð aldarinnar...alveg með ólíkindum hvað verslunareigendur og apótek eru rausnaleg við þessa krakkapjakka...en markið er jú sett hátt..Danmörk í níu daga á vordögum...alveg þess virði að leggja eitthvað á sig fyrir slíka ævintýraför....hver gerir það ekki????

Sæll...klukkan er farin að skríða í ellefu og ég sem ætlaði að setja inn blogg á skikkanlegum tíma...vera komin inn um sjöleytið eða eitthvað...afsanna að ég sé ALLTAF vakandi á nóttinni...þó ég sé það svosem oftast..er svo mikill nátthrafn...en ég stekk líka á fætur á hverjum morgni...eldhress..svona yfirleitt...hlýt því að teljast meiri svona AB-BA manneskja en A EÐA B...Maður kemst bara yfir svo mikið ef maður NOTAR tímann....
                                      
Er búin að afreka margt bara á meðan ég er að blogga þetta..m.a kaupa í matinn...græja matinn...elda matinn...leggja á borð... setja í þurrkara...tala í símann( !!!...EKKI  allan tímann...)...bera fram matinn...borða matinn...setja í uppþvottavélina... starta uppþvottavél...gefa hundspottinu að éta...finna Öskudagskassann... hjálpa til við að setja saman búninga....búa til klappstýrudót...labba út með Tönju..  taka úr þurrkara og setja í þvottavél...góla nokkrar uppeldislegar áminningar til unglingaveikinnar þarna inni í herbergi og kíkja á myndir hjá Magganum....sem hann er að nostra við fyrir síðuna sína...
Ágætis afrek á fimm tímum eða svo??? Gleymi örugglega einhverju....

 
Hjá lækninum



85 ára gamall  maður fór til læknisins til að láta taka sáðprufu. 
Læknirinn lét manninn hafa glas með sér heim og bað hann um að koma tilbaka daginnn eftir með prufuna.  
Næsta dag kemur sá gamli til læknisins og lét lækninn hafa tómt glasið eins og hann fékk það deginum áður.Læknirinn spurði karlinn þá hverju sætti og bað hann um útskýringar.  
"Já doksi, þetta gerðist svona - fyrst reyndi ég með hægri  hendinni og svo reyndi ég vinstri en ekkert gerðist.  
Þá bað ég konuna að hjálpa mér.Hún reyndi fyrst með hægri  og síðan vinstri hendinni eins og ég hafði gert en án árangurs.
Hún reyndi einnig með munninum,fyrst án tanna og svo með tönnunum en ekkert gerðist.
Við ákváðum þá að tala við nágrannann hana Önnu ,hún reyndi þetta líka fyrst með báðum höndum í einu og svo reyndi hún meira að segja líka að kreysta á milli hnjánna en  ekkert gerðist. Lækninum var mjög brugðið "Spurðir þú virkilega nágrannann  ?"
"Jebb" svaraði sá gamli. Og sama hvað við reyndum tókst okkur ekki að opna glasið!  

Ha Ha - Hvað hugsaðir þú?  Oj...ertu svona????


  
 
MUNA: "Að deila með öðrum því sem liðið er, það er ljóðið í dagsins önn...."

Farið vel með ykkur honníbonní...

 
Lovjú....


...SUMIR HLÆJA HA HA HA HA HA....AÐRIR HLÆJA.....

  

Úbbs...ég er soldið vond manneskja..illa innrætt og pínu kvikindi...ég nebbla SKELLIHLÓ að fíflagangi þeirra Spaugstofumanna....jebb..mér fannst þetta bara fyndið og lít ekki á að verið sé að gera grína AÐ SJÚKDÓMI..heldur manneskju sem er SÉRSTÖK eins og allar hinar sem verið er að gera grín að....ég meina..ég hlæ líka geðveikislega að Stelpunum...Audda í Tekinn...gömlu skaupunum sem eru jú að gera stólpagrín að því sem er í gangi þá stundina...Mr. Been... Simpson og guð veit hvað...og ég ELSKA að hlæja og vita að ég get orðið allra kerlinga elst vegna þess....
 
 

 
Og ég get auðveldlega hlegið að sjálfri mér...oft svo klaufaleg...seinheppin....fljótfær....orðheppin eða orðÓheppin....vandræðaleg og hið mesta bullutröll....
 
 
 
Ég skellihlæ og geri grín að óförum Maggans og sjálfrar mín....og að ótrúlega fyndnum uppákomum aá heimilinu...að ormagormunum mínum...brjálæðislega fyndnum athugasemdum og ótrúlega biluðum athugasemdum sem út úr þeim koma...
 
 
 
Ég gerði HÁÐljóð um mömmuna mína þegar hún klúðraði ættarmótinu...svo við vorum einni helgi of sein...thí hí...
Og við grenjuðum úr hlátri vegna þessara mistaka...
 
 
Ég er með kúkahúmor dauðans og er algjört hrekkjusvín...en þeir sem ég umgengst kunna að taka því...díla við það...og hlæja bara með mér...
 
 
Ég skil bara ekki þessa umræðu um að það megi gera grín að öllu NEMA „þessu"...tónninn ótrúlega lágvær og áhyggjufullur eins og fólk haldi að það geri einhverjum illt með því að tala hreint út um geðveiki...geðbilun...geðraskanir...þráhyggju...ranghugmyndir...
þunglyndi...

Auðvitað er þetta erfiður sjúkdómur en flestir læra að lifa með hann...takast á við upp og niðursveiflur og reyna að lifa normal lífi..rétt eins og fllogaveikir...asthmaveikir....hreyfihamlaðir...
mígrenisjúklingar... hjartveikir og hvað þessir sjúkdómar heita allir saman...

Fólk hlýtur bara að geta reynt að sjá húmorinn í þessu öllu..hlæja að sjálfu sér og vera bara það sjálft....
 
 
Ef ég væri ekki eins og ég er...væri ég pottþétt geðveik....
Alveg satt...miðað við það sem ég er búin að takast á við á  lífsleiðinni ætti ég bara að vera búin að tapa mér...missa það...sjá ekkert nema svartnættið...vera þunglynd og döpur...alla daga...brotin og beygluð...krumpuð og týnd...

 
En...sem betur fer fæddist ég með þennan aulahúmor. Já, það er sko miklu betra að geta bara gert grín af öllu saman og hlæja hrossahlátri...komast áfram á gálgahúmor og góðlegri kaldhæðni...

Það er fullt af fólki sem er að kljást við endalaus vandamál..en reynir bara að sjá það góða og skemmtilega við allt vesenið og kemst langt á hlátrinum...jákvæðninni og gleðinni....lengir líf sitt um helling...og er bara sátt við sitt...

 
„Hláturinn lengir lífið"...segir einhvers staðar og ég er búin að sjá marga komast langt á þeirri staðhæfingu...

 
Bara VARÐ að rasa aðeins.....
 
 
 
Annars allt fínt af Trönuhjallatöffurum...nema hvað kvefpest virðist vera að laumast hér inn...hey koma svo...hver bauð?????
 
 
Elstimann kominn með sullandi hita og bullandi kvef og Minstan hóstandi og hnerrandi útí eitt...en hitalaus...ennþá...
Sko...nú get ég verið Pollýanna....því ef þau þurfa að hýrast heima á morgun þá eru þau svo ógeð heppin að hafa pabbann sinn hjá sér...Magginn er heimavið...og getur hjúkrað þeim á „Einari"
 
 
Og já,..Magginn fór til doksa í dag til að láta kíkja á hnéð...taka plástra og skoða útlit...
Þetta er allt í ágætum farvegi....sjúkraþjálfun framundan og þá ætti hann að verða nokkuð klár í slaginn fljótlega....
 
 
Og brandari aldarinnar er að við förum SAMAN í þessa sjúkraþjálfun..thí hí...gaman að því...

 Ég fór til þessa sama læknis fyrir fjórum árum og átti þá víst að fara í þjálfun vegna slæmsku í hnjám...en ég bara „GLEYMDI" að
gera eitthvað í því og það var sem sagt verið að uppgötva það í dag...he he ..komið að skuldadögum og ekkert múður...mín bara munstruð í Orkuhúsið....með tíma og allt...
 
 
Það snjóar endalust þarna úti, líklega af því að vetur Konungur er í stuði...og þetta er jú hans tími...Brrrr.....en við Tanja fórum út í myrkrið og örkuðum um hjallann....fengum hressandi vindinn í fangið og komum eins og snjókarlar til baka....vááá hvað það er gaman að vera lítll hundur í snjó!!!!

 
MÉR FINNST ÞESSI FYNDINN:

 
Jóhann var að útskrifast úr laganámi frá HR. Hann átti sér stóra drauma um glæsta framtíð. Jóhann fór að sækja um vinnu í stóru fyrirtæki í borginni.


Starfsmannastjórinn sem tók viðtalið var hrifinn af þessum efnilega manni og var mjög heitur fyrir því að ráða hann í vinnu.


Áður en viðtalið var búið spurði starfsmannastjórinn hvaða launahugmyndir Jóhann hefði.
"Ég var að spá í 1.500.000,- á mánuði svona til að byrja með", svaraði Jóhann.


Starfsmannastjórinn horfði á hann í smá stund og sagði svo: "Hvernig líst þér á  2.500.000,- á mánuði, 2 mánaða sumarleyfi á fullu kaupi, 21% mótframlag í séreignarsjóð, nýjan LEXUS til ótakmarkaðra afnota og húshjálp til að þrífa heimilið?"


Jóhann varð orðlaus. Þetta var meira en hann hafði þorað að vona. Að lokum sagði hann í mikilli sigurvímu: "Þú hlýtur að vera að grínast!"
Starfsmannastjórinn svaraði að bragði: "Já - en þú byrjaðir....."
 
 
Ha ha ha....

Eigið góða og draumfagra nótt gullin mín bestustu og geggjaðan dag á morgun....HLÆJIÐ og hafið gaman af lífinu...átið ekki smáatriðin trufla ykkur.....horfið bara á björtu hliðarnar....trúið mér...það svínvirkar....
 
 
MUNA: Sönn hamingja er fólgin í því að gefa....

 Knúúús!!!!
 
 
 
Lovjú soldið mikið...     Bergljót Hreinsdóttir
Engin athugasemd

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband