Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

...HVER SAGÐI AÐ LÍFIÐ VÆRI SALTFISKUR...????

 

Obbobobb...langt síðan síðast....en ekki endilega af því ekkert sé að gerast á þessum bæ...neineinei ...frekar hitt...allt að gerast og lítill tími til að setjast við tölvuna...en...nú er mér má...

   

Er semsagt á fullu að undirbúa fermingu heimasætunnar og flestir hlutir að smella saman...fötin...hárið...skreytingarnar...boðskortin...maturinn...og allt hitt....og ekki laust við að daman sé farin að hlakka til stóra dagsins.....bara gaman....

   Árshátíð bæjarins var haldin með pompi og prakt að vanda...Fífan skreytt með gulli og eldi og snarkandi bálköstur á öllum skjám milli skemmtiatriða....

Síðustu ár hafa þeir á Brodway séð um matinn handa okkur og sló  gegn....í                                                                                                                                  slegið ...maturinn snilld...þjónustan snilld og serveringin fullkomin...allir fengið matinn sinn á réttum tíma og öll tímaplön haldist hundrað prósent...

    Í ár voru 1.800 manns í Fífunni og veislan í höndum Múlakaffis...sem er þekkt fyrir frábæran mat og flotta þjónustu....En...það kom babb í bátinn....babb...sem hefði mátt losna svo auðveldlega við...ef menn hefðu bara látið vaða....Það var byrjað að bera fram súpuna og allt virtist ganga fullkomlega...þangað til allt í einu...súpan hætti að kom ´salinn....Og við biðum...og biðum...og biðum....en ekki kom súpan...rjómalöguð villisveppasúpan....Þjónarnir helltu afsakandi meira af hvítvíni í glös og báru fram meira brauð...en enginn vissi neitt um súpuna....Það fór að hvissast um salinn að það hefði ekki verið næg súpa og að verið væri að sjóða meira....svo fór að berast um að kokkurinn hefði óvart hellt súpunni niður....svo kom saga um að þjónarnir hefðu sullað súpubala um koll....svo sagan um að kokkurinn hefði misreiknað sig...og loks sagan sem enn stendur...að bílstjóri sem flutti matinn hafi óvart hellt niður 163 skömmtum en ekki látið vita.....Borðahaldið byrjaði átta...en súpan kom loks á síðustu borðin um hálf ellefu...já sææææll.... bragðgóð....en skelfilega þunn....máttlaus tilraun til að redda sér út úr ógöngunum...sumir sögðu með Campbellsúpu...aðrir Maggi....en súpan skilaði sér á endanum og hvítvínið var aðeins farið að hreyfa blóðið....Hefði líklega verið heiðarlega að láta Örninn bara tilkynna mistökin og láta okkur sem ekki fengum súpu sætta okkur við það...fá matinn inn í sal og allir sáttir....

Aðalrétturinn var því eki borinn á borð fyrr en um ellefu og eftir hann voru ekki sérlega margir sem hentu sér yfir eftirréttinn um hálftólf.... en létu sig frekar vaða á dansgólfið....enda matarlystin löngu drukkin burt....

   

En...þetta var nú ekki það eina sem við Magginn og ég díluðum við þetta kvöldið....Elstimann sá um það...

Meðan við biðum eftir súpunni hringdu vinir hans til að segja okkur að kauði hefði dottið fyrri utan heima og að þeir væru búnir að hringja á sjúkrabíl...Við urðum náttla oggulítið óróleg...ég hringdi strax upp á slysó en sjúkrabíllinn var ekki kominn....sagði að við værum stödd á árshátíð en gaf upp símann og bað um að við yrðum látin vita hvað væri í gangi....Hringdi svo í Mömmukrúttið og pabbalinginn sem snöruðu sér út í bíl og rúlluðu uppeftir til að tékka á stöðunni...Við vorum tvístígandi...var þetta alvarlegt eða voru vinir hans að ofmeta aðstæður?Fengum svo að vita að kallinn væri soldið lemstraður en að við ættum bara að vera kyrr..amman og afinn sæju um guttann...

Soldið erfitt...en tilhugsunin um að koma uppeftir angandi af áfengi ver ekki sérlega spennandi....þrátt fyrir að ekki væri búið að sulla neitt mikið....

     Svo kom næsta símtal...allt í lagi...ekki hafa áhyggjur...Ása læknisfrænka er á staðnum og sér um ormagorminn...og amma og afi pollróleg á staðnum...Úff...soldið erfitt....soldið mikið erfitt....Drengurinn ekki háls eða höfuðkúpubrotinn...“bara“ slæmur heilahristingur ...brotið nef og rifin augabrún sem var bróderuð með hraði.......eruð þið viss um að við eigum ekki að koma????

<neineinei...engar áhyggjur....hann er í góðum höndum...þið getið ekkert gert...

   

Svo við sátum í Fífunni og átum siðbúinn kvöldmatinn og vorum frekar óróleg...

   Næsta símtal...amma og afi á heimleið...pjakkurinn farinn að lúlla á slysó og ekkert meira hægt að gera í stöðunni....hann væri í bestu höndum í heimi og honum liði vel eftir aðstæðum...

Újé...hvers konar foreldrar erum við eiginlega????

      Þegar við svo komum heim í Trönuhjallann féllust okkur algerlega hendur...

Það var aðeins of mikið blóð við innganginn...og inn...og eftir veggnum upp stigann...Hjálp!!!!

   Ég fór rakleitt í símann...notabene...ég var varla búin að sötra meira en yfirborðið af hvítvíninu... einn bjór og smá af fordrykk...svo ég var í fínu lagi....enda léleg í drykkjunni alla jafna...finnst bara gaman að vera með...

Slysó má ekki gefa upplýsingar um líðan sjúklinga í síma...en mér tókst að kreista það út að strákurinn minn stóri væri sofandi og allt í góðu lagi...

   

Daginn eftir komum við svo upp á slysó með angistarsvip dauðans og samviskubit aldarinnar...en Elstimann bar sig vel....sáttur við ömmu og afa og læknafrænkuna góðu...

   

Illkvittna vonda mamman fékk móðursýkislegt hláturskast þegar hún barði barnið augum...enda sjónin frekar ...já...segi ekki meir.... hornin og halinn á sínum stað...múhaha...

   

Krakkagreyið fékk svo að koma heim með okkur og var frekar fegin að sleppa af spítalanum...enda ekki sérlega spennandi að liggja þarna og móka...betra að vera bara í sínu góða rúmi og hafa allt sitt á hreinu....

   

Hvað gerðist?...jú...hann var að hoppa niður af lágum vegg við bílaplanið...kannski hoppaði hann yfir...man það ekki...en allavega var gangstéttin fyrir neðan það hál að salíbunan endaði niður brekkuna við innganginn og á steinröri sem gegnir hlutverki affalls....andlitið beint á rörið....stóð svo upp...ringlaður...man ekki meir...en vinir hans sáu hann detta beint framfyrir sig á stéttina...ÁTS!!!

   

Í alvöru...ef ég hefði heyrt þessa sögu aðeins fyrr...þá hefði ég nú ekki setið og slafrað í mig súpugutlinu í rólegheitum sko....

    

En...þriðja heilahristingstilfellið á sirka fjórum árum...alveg með ólíkindum hvað þessi hauskúpa þolir....

   

Gaurinn er svo búinn að vera heima síðastliðna viku...og ég reyndi að bæta brot mitt með því að vera heima hjá honum á mánudeginum og vera góða hjúkkan...og besta mamman....

    Hann er allur að koma til...en kvartaði mest yfir doða í höndum og fótum...bakverk og mjaðmaverk...en fannst rosalega krípí að vera ekki illt í höfðinu...bara einhvern veginn dofinn....

Og svo kastaði hann upp í nokkra daga...gat ekkert borðað en fannst hann óendanlega þyrstur....

   Í gær var hann samt nokkuð brattur...sagðist vera svo ánægður að þurfa að biðja um verkjatöflu...því nú væri doðinn farinn og hausverkurinn kominn...þessar bylgjur sem hann kannaðist vel við frá síðustu höfuðhöggum....Hmmm...maður spyr sig....hvernig er hægt að vera fegin að hafa loksins almennilegan höfuðverk????

Kannski bara það að þá veit maður að maður er í lagi....????

   Fyndnasta uppákoma ever varð daginn eftir þetta slys...Einn af þessum snarklikkuðu íbúum þessa húss kom röltandi í rólegheitum niður tröppurnar og að innganginum...sá blóðpolla og slettur og snarstoppaði...henti sér á fjóra fætur...skreið að blóðinu og gargaði:“What a fuck! What a fuck!“...stökk svo á fætur og hljóp á harða spretti burt frá húsinu...

Við...kvikindin...lömuðumst úr hlátri....og gáfum okkur þá skýringu að líklega hefði greyið talið sig hafa myrt einhvern...en ekki munað neitt frá gærdeginum...he he...

   

Þegar mamman var alveg viss um að allt yrði í lagi á heimilinu...eða reyndi að sannfæra sig um það....brá hún sér af bæ og fór í húsmæðraorlof austur í sveitir...

    Trúið mér...það var geggjað....mikið hlegið... fíflast... skrappað og hamast í boðskortagerðinni...og afraksturinn hinn ágætasti....

Abba sáu um að halda okkur föndurgellunum...eða kroppkonunum...við efnið...síðurnar fæddust hver af annarri...hver annarri betri...potturinn yljaði....maturinn var ekki slæmur...enda eðalkonur á ferð... namminamminamm...dúllast og dekrast fyrir allan peninginn og stemman algerlega í toppi....

   Komum endurnærðar heim í gær og létum allar þessar veðurtegundir ekkert hrella okkur...   

Mætti svo hress og tvíefld til leiks í litla bláa krúttkofann...og fékk endalaust mikið af knúsi í allan dag....

   

Vikan liggur svo þarna fyrir framan...óskrifuð...en örugglega tíðindamikil...enda aldrei logn í mínu lífi...ha ha ha!!!!

   Vona að allir eigi frábæra viku framundan...með fullt af hlátri...gleði og góðum uppákomum....

„Stefndu á tunglið og þú gætir gripið stjörnu í leiðinni...“

     MUNA: Vegferðin gegnum lífið getur stundum verið þreytandi og erfiðEn góður félagsskapur gerir ferðina miklu ánægjulegri.Réttu samferðarfólki þínu hönd vinátturnar.- Það skiptir ekki mestu að bæta árum við líf sitt, heldur hitt, að bæta lífi við ár sín  -

                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                         

....TJILLIRALLIREI....

    

Jæja…tíminn bara alltaf á harðahlaupum og maður nær varla andanum….

Erum náttla bara hress og spræk…Trönuhjallatöffararnir….höfum alveg verið laus við flensu frekju…kvefpestir og magakveisur  og hvað þetta nú heitir allt saman sem er að herja á landsmenn þessa dagana…

Segi bara 7…9…13…og vona að heilsan haldist svona góð sem allra lengst….

  

Magginn minn einhenti er allur að koma til…verkirnir þó enn stöðugir og svona…en þetta er nagli....þessi elska…og hann lætur sig bara hafa þetta…farinn að vinna og hamast í sjúkraþjálfu og svo er bara að vona að handleggurinn verði betri en glænýr…..

  

Miðormurinn og Minnstan eru á árshátíð þessa stundina…fóru héðan glerfín og flott og full af spenningi og tilhlökkun…enda öllu tjaldað til í skólanum….alger snilld…er mér sagt….

  

Elstimann er enn að leita að vinnu…farinn að örvænta örlítið…en hann hlýtur að drtta niður á eitthvað þrátt fyrir dapurt útlit á vinnumarkaði…það þýðir ekkert annað en vera bara bjartsýnn….

  

Litlu krílin mín í bláa krúttkofanum blómstra og dafna…hafa átt töff tímabil með lngnabólgu…RS vírusi…Barkabólgu…eyrnabólgum….hósta og hita…og horframleiðslan óendanleg…..en samt eru allir glaðir og kátir….og þessir ljósálfar gefa manni endalausa orku og kraft…gleði og trú á lífið sjálft og tilgang þess….

  Og framundan er svo þriðja og síðasta fermingin á heimilinu…ó mæ god…etta er náttla bara bilun…

Litla snúllan mín að fermast….verða fullorðin…úffamæ…ekkert smá skrýtið…

  

Við erum á góðri leið með allan undirbúning…en erum samt ekki enn búin að fá endanlegt svar um salinn…hóst hóst…svo ef einhver á sal á lausu…þá má hafa samband…dagurinner 5.apríl takk kærlega…en ég er bjartsýn eins og alltaf…Pollýanna á staðnum….tjillirilli rei…þetta verður bara gaman….

  Árshátíð bæjarins er svo framundan…á laugardaginn…og þrátt fyrir kreppuna ætlar Gunnar vinur okkar að blása til veislu…kýla bara á þetta…hressa upp á bæjarstarfsmenn og ýta áhyggjunum til hliðar smá stund…Fífan verður gylt og flott og það eru bara allir að verða nokkuð spenntir….

Verður flott eins og alltaf…ekki spurning….

Og svo erum við komin á fullt að leita að stærra húsnæði....

  

Svo það er ekki eins og maður sé verkefnalaus hér á bæ…eða vanti eitthvað að gera….alltaf nóg….og meira en það….

...bara gaman....

  

Fann nokkra góða….og vona að þeir komi ekki öllu í bál og brand…thí hí…borgar sig að þekkja sína....

 Við konan mín lágum uppi í rúmi og horfðum á Villtu vinna milljón.Ég snéri mér að henni og sagði, “ Villtu gera do do ? “Hún svaraði, “ Nei”Ég spurði, “ Er þetta þitt lokasvar” ?Hún leit ekki einu sinni á mig er hún svaraði Já”Ég sagði, “Þá langar mig að hringja í vinkonu”...og þá fór allt í bál og brand….  


 

 Ég spurði konuna mina, “ Hvert langar þig að fara á brúðkaupsafmælinu okkar” ? Mér hlýnaði um hjartarætur að sjá hvernig hún lifnaði öll við og horfði á mig með aðdáun er hún svaraði,“Eitthvert sem ég hef ekki farið lengi “Með það í huga kom ég með uppástungu,” Hvað með eldhúsið “ ?...og þá fór allt í bál og brand….

  

 

Síðasta laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega, útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr. Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn, klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í kroppinn hvíslaði ég að henni, “ Það er brjálað veður úti”. Elskuleg konan mín til 10 ára svaraði strax,” Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri”...og þá fór allt í bál og brand….. 
 
Ég bauð konunni minni með í helgarferð til Boston um daginn og þar fórum við á fínt veitingarhús. Einhverra hluta vegan tók þjónninn fyrst pöntunina mín. Ég sagði, og var heldur rogginn með enskuna mina,  "I&#39;ll have the strip steak, medium rare, please." He said, "Aren&#39;t you worried about the mad cow?"" Ég svaraði “ Nah, she can order for herself."...og þá fór allt í bál og brand…. .
Við konan mín fórum á árgangsmót í gamla skólanum mínum. Þar sem við sátum tók konan mín eftir að ég horfði á konu á næsta borði. Kona þessi var vel drukkin og þambaði ótæpilega og röflaði við sjálfa sig milli glasa.“Þekkir þú þessa konu” spurði konan mín.“Já sagði ég, þetta er gömul kærasta og ég heyrði að hún hefði farið að drekka svona eftir að ég sagði henni upp þarna um árið”.Konan mín leit á hana í forundran og sagði,” hver hefði trúað því að hægt væri að hafa svona ómerkilegan atburði að fagnaðarefni í öll þessi ár”....og þá fór allt í bál og brand…. 
………………………………………………………………………………………………………………………………………  
Um daginn varð ég 67 ára og hætti þá að vinna. Ég fór til að ganga frá öllu í sambandi við ellilífeyrinn minn. Konan á skrifstofuni bað um að sjá ökuskírteynið mitt til að staðfesta aldurinn og þá uppgötvaði ég að veskið mitt hafði orðið eftir heima. Konan sagði að þetta væri í lagi, bað mig að hneppa frá þremur efstu tölunum á skyrtunni minn. Ég gerði það og er hún sá silfurgráa englahárið á bringunni á mér sagði hún að þetta væri nóg staðfesting fyrir hana.Þegar heim kom sagði ég konunni minni frá þessu. Hún varð hálf örg. “ Bölvaður endemis asni ertu maður, þú hefðir átt að láta buxurnar falla líka Ég er viss um að þá hefðir þú fengið örorkubætur út á þennan ræfil þarna niðri”....og þá fór allt í bál og brand…. 
Ha ha ha… 

Farið stilt og góð inn í helgina…sparið ekki húmorinn og hlæjið eins og vitleysingar…það gerir þetta alt svo miklu betra….jákvæð…björt og brosandi…eins og Bylgjan…

 MUNA: Ástin er búin töfrum.Hún er málið sem heyrnarlausir heyra,söngurinn sem fatlaðir dansa eftir og sólsetrið sem blindir fá að sjá.

- Trúðu og framkvæmdu eins og þér sé ómögulegt að mistakast

  Elskjú!

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband