...ÁGÆTIS UMHUGSUNAREFNI ÞESSA DAGANA...OG ALLTAF...:

   

 

Mér finnst þessi speki skerpa aðeins á hugsuninni og skilgreiningunni á því hvað skiptir máli og hvað ekki..... 

 

Heimspeki Charles Schultz:



Charles Schultz er höfundur teiknimyndasyrpunnar Peanuts. Þú þarft ekki að svara spurningunum.
Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:


1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á síðasta ári.

Hvernig gekk þér?

Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins. Þetta eru ekki annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.En klappið deyr út.Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og skírteinin eru grafin með eigendum sínum.

Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:

1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.

Auðveldara?

Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir, sem hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin.
Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli.

Sendu þetta áfram til þeirra einstaklinga, sem hafa haft jákvæð áhrif á líf þitt.
Hafðu ekki áhyggjur af því, að heimurinn sé að farast í dag. Það er nú þegar
morgun í Ástralíu. (Charles Schultz)
 

Verum bjartsýn...það kemur alltaf dagur eftir hverja nótt...sama hversu dimm hún er...

 

Tökum bara undir með Júllla á Dallanum og verum góð við hvert annað...bros og knús í hvert hús...það er mikilvægast núna!!!

 MUNA:Bros á andliti þínu fegrar útlit þitt og færir þér æskuþokka og bjartsýni sem fegrunaraðgerðir og ráðgjöf geta aldrei veitt þér.Þú getur sigrast á næstum hvaða ótta sem er ef þú aðeins ákveður það. Mundu að óttinn er hvergi til nema í huganum…”    

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þörf áminning Bergljót

Sigrún Jónsdóttir, 9.10.2008 kl. 22:20

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

"Mundu að óttinn er hvergi til nema í huganum…”

Þetta er nefnilega heila málið! Og það sem hugurinn getur ímyndað sér er oft miklu miklu verra en raunveruleikinn! 

Eigðu góðan dag! 

 

Hrönn Sigurðardóttir, 10.10.2008 kl. 12:32

3 Smámynd: Einar Indriðason

Víha!  Þetta er jákvætt innlitskvitt.  Góð heimspeki í þessum spurningum :-)

Einar Indriðason, 10.10.2008 kl. 20:31

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Nákvæmlega!

Góða helgi elsku Bergljót

Ragnhildur Jónsdóttir, 10.10.2008 kl. 22:13

5 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

 Knús í þitt hús

Júlíus Garðar Júlíusson, 11.10.2008 kl. 14:36

6 Smámynd: Sigrún Óskars

góð lexía - gott að minna mann á þetta - takk

Sigrún Óskars, 12.10.2008 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband